Jæja djöfull er maður duglegur að
blogga,það er bara ekkert smá... Reyndar er málið það að
maður hefur ekki haft neitt spes til að blogga um eða þá að
einhver annar hefur verið búinn að því áður,ákvað allavega að
skell nýrri færslu hér inn.
Svo verður bara að koma í ljós hvort þetta er fyrsta bloggið í
röð af stórri blogg bylgju eða kannski síðasta (þarf að fara að
virkja þetta my space hjá mér...Allavega þá taldi ég til nokkra
hluti sem hafa verið að ské í mínu lífi undan farnar vikur eða eru
framm undan hjá mér.. er ekki að nenna að blogga um veðrið læt bara
Andra um það að segja okkur hvernig það er á þessum stað sem hann
er að fara til sem ég hvorki man hvað heitir hvað þá kann að skrifa
nafnið á,allavega.............
1) Við Hlynur og Andri sendum þeim í innlit- útlit meil um
daginn þegar við vorum að sötra bjór heima hjá mér í aðgerðaleysi
eina helgina,og viti menn það kom svar sem hljóðaði svo að þau gætu
án efa hjálpað mér með íbúðina og báðu mig að vera í sambandi við
sig í maí þegar byrja á að taka upp nýja seríju (gaman af
þessu)
2) Ég var kosinn stjórnarmaður húsfélagsins að Laugarnesvegi
108,, 3 mættu á fundinn og einn var í framboði,,þ.e.a.s ÉG (gaman
af því)
3) Starfa þessa dagana sem vaktformaður í lauginni við takmarkað
gleði hjá feitu kellunni í afgreiðslunni.
4) Er búinn að sprengja heimildina á gull kortinu mínu, það
skeði í dag í Intersport þegar ég var að versla fyrir 34.000 kall
enda búinn að kaupa föt fyrir meira en 100.000 þennan mánuðinn
fyrir utan að kaupa til að mynda nýtt sjónvarp í eldúsið og nýja
myndavél (verð með þessa nýju í keðju um hálsinn)
5) Er að hlaupa einsog tík í World Class fjórum sinnum í viku
enda svitna ég líka einsog hóra í kirkju þarna á brettinu (fit for
life)
6) Stefni á að hlaupa hálft maraþon í águst 21 km,...
7) Á afmæli 23 maí og þá fer framm úrslitaleikurinn í
meistaradeildinni, ef Liverpool kemst nú í úrslit og vinnur þetta
þá mun þetta án efa eiga eftir að vera besti dagur lífs míns,, að
sama skapi þá á ég ekki eftir að verða ábyrgur gjörða minna ef
Liverpool mundi nú tapa þessu fyrir segjum United og Gummi þar með
að vinna af mér annan kassa af bjór (helvískur)þetta bara skeður
ekki og HANA NÚ...
Held uppá afmælið mitt á laugardaginn 26 maí og get ég lofað
stærsta fylleríi ársins og verður allt fljótandi í víni Og barinn
verður vitaskuld opinn áður en stefnan verður tekinn í bæinn í kúta
drykkjuna miklu...